Home Fréttir Í fréttum Seinkanir á flugi í Bandaríkjunum: Kapall óvart skorinn í sundur

Seinkanir á flugi í Bandaríkjunum: Kapall óvart skorinn í sundur

48
0
Seinkanir á flugi í Bandaríkjunum: Kapall óvart skorinn í sundur
Flug í New York, Pennsylvaníu, New Jersey og Massachusetts var stöðvað eða því seinkað í dag. EPA – SARAH YENESEL

Seinkanir á flugi í Bandaríkjunum: Kapall óvart skorinn í sundur

Byggingarverkamenn skáru óvart í sundur kapal sem er nauðsynlegur fyrir flugumferðarstjórn í New Jersey í gær. Hundruðum flugferða seinkaði á stórum flugvöllum í Bandaríkjunum í kjölfarið.

Hundruðum flugferða var seinkað á stórum flugvöllum í Bandaríkjunum í gær eftir að byggingarverkamenn skáru óvart í sundur kapal sem er nauðsynlegur fyrir flugumferðarstjórn.

Flug voru stöðvuð eða þeim seinkað seinni part dagsins í dag á flugvöllum í New York, Pennsylvaníu, New Jersey og Massachusetts.

Fjarskiptafyrirtækið Verizon, sem á kapalinn, segist ekki bera ábyrgð á skemmdunum en að unnið sé að viðgerð eins fljótt og auðið er, að því er fram kemur í frétt BBC. Skemmdirnar á kaplinum höfðu áhrif á kerfið sem er notað til að leiðbeina flugvélum við flugtak og lendingu, að sögn samgönguyfirvalda.

Alþjóðaflugvöllurinn Newark Liberty í New Jersey varð verst úti í truflunum á flugumferðarstjórn í dag en 267 brottförum seinkaði þaðan í dag. 257 flugferðum sem voru á leið til Newark var einnig seinkað.

Sean Duffy, samgönguráðherra Bandaríkjanna, segir að skemmdirnar á kaplinum hafi orðið við framkvæmdir starfsmanna Amtrak í New Jersey, ríkisfyrirtækis sem sér um lestarkerfi milli borga í Bandaríkjunum.

Heimild: Ruv.is

Efni: Seinkanir á flugi í Bandaríkjunum: Kapall óvart skorinn í sundur