
Stærsta fjárfestingin til þessa
Bera hf., móðurfélag Ölgerðarinnar og fleiri fyrirtækja, hefur auglýst útboð vegna hönnunar og byggingar nýs vöruhúss á Hólmsheiði í Reykjavík. Um er að ræða lokað alútboð þar sem helstu verkþættir eru fullnaðarhönnun húss og lóðar, jarðvinna, uppsteypa og frágangur.
Jón Þorsteinn Oddleifsson forstjóri Beru segir að um sé að ræða vöruhús og dreifingarmiðstöð fyrir flestar vörur fyrirtækjanna í Beru-samstæðunni. Drykkjarvöruframleiðsla verður áfram í núverandi höfuðstöðvum á Grjóthálsi.
„Í dag er vörulager félagsins á Grjóthálsinum þegar orðinn of lítill og við höfum þurft að nýta okkur önnur vöruhús með tilheyrandi óhagræði. Með því að færa vörurnar á einn lager uppi á Hólmsheiði náum við auknu hagræði ásamt því að nýta núverandi lagersvæði fyrir fleiri framleiðslutæki til að auka og útvíkka framleiðsluna til framtíðar. Byggingin á Hólmsheiði er í raun forsenda fyrir frekari uppbyggingu framleiðslu á Grjóthálsinum,“ segir Jón Þorsteinn.
Heimild: Mbl.is
Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: 28.09.2026 Vöruhús Beru hf á Hólmsheiði – Alútboð
Efni: Stærsta fjárfestingin til þessa











