
Telja fagmenntun og öryggismálum ábótavant
Aðeins einn starfsmaður af 30, sem unnu fjölbreytt iðnaðarstörf á stóru byggingasvæði í Garðabæ var með staðfest sveinspróf. Öryggismál voru einnig í ólestri og launamál vöktu athygli þegar eftirlitsfulltrúar Fagfélaganna mættu í vinnustaðaheimsókn í vikunni.
Benóný Harðarson, framkvæmdastjóri Fagfélaganna, segir engan mega vinna vinnu iðnaðarmanna nema hafa til þess tilskilin réttindi en í tilkynningu á vef Rafiðnaðarsambands Íslands segir að eftirlitsfulltrúar Fagfélaganna hafi farið ásamt fulltrúum annarra stéttarfélaga í umfangsmikla vinnustaðaheimsókn á byggingarsvæðið í gær.
28 af 30 starfsmönnum erlendir
Á byggingasvæðinu var m.a. unnið við húsasmíði, raflagnir, pípulagnir, múrverk, gluggaísetningu, steinslípun, uppsetningu loftræstikerfa, járnabindingar og mótauppslátt, að því er kemur fram í tilkynningunni.
28 af starfsmönnunum 30 voru af erlendum uppruna en tveir íslenskir. Aðeins þrír eða fjórir virtust sinna almennum verkamannastörfum, eins og það er orðað í tilkynningunni.
Margir starfsmenn voru án nauðsynlegra persónuhlífa; öryggisgleraugna, heyrnahlífa og öryggisskóbúnaðar. Fallvarnir voru ekki fullnægjandi á hluta byggingarsvæðisins og verður Vinnueftirlitinu send sérstök ábending vegna þess.
Þá segir að starfsmenn sem unnu við bræðslu tjörupappa virtust ekki hafa fengið fullnægjandi fræðslu um svokallaða heita vinnu. Þegar þeir voru spurðir út í þjálfun eða námskeið vegna slíkrar vinnu könnuðust þeir almennt ekki við að hafa fengið slíka fræðslu utan eins sem taldi mögulegt að hann hefði fengið áþekka þjálfun erlendis.
Vinnustaðaskírteini voru undantekning fremur en regla en að mati eftirlitsfulltrúa voru aðeins um 20% starfsmanna með slík skírteini.
Sambærileg vandamál komið í ljós áður
Í tilkynningunni segir að ellefu fyrirtæki starfi á svæðinu, fimm í eigu erlendra ríkisborgara. Gögn um fyrirtækin og starfsmenn þeirra verði nú skoðuð nánar, m.a. með tilliti til þess hvort fagleg ábyrgð og tilskilin réttindi séu til staðar þar sem krafist sé.
Samkvæmt heimildum mbl.is er Framkvæmdafélagið Arnarhvoll ehf. aðalverktaki á byggingarsvæðinu en Arnarhvoll reisir m.a. íbúðir í Vetrarmýri í Garðabæ.
Starfsmenn fyrirtækja í eigu erlendra aðila fengu launaseðla ýmist seint eða illa og stéttarfélagsaðild starfsmanna var sömuleiðis víða óljós, að því er segir í tilkynningunni.
Í tilkynningunni segir að þetta hafi ekki verið fyrsta eftirlit Fagfélaganna á þessum vinnustað og að sambærileg vandamál hafi komið í ljós í fyrri heimsókn.
„Það er sérstakt áhyggjuefni að enn skuli blasa við sama óreiða þegar kemur að faglegri ábyrgð, vinnustaðaskírteini, launamálum og öryggismálum.
Vinnueftirlit Fagfélaganna, FIT og Eflingar mun fylgja málinu fast eftir og gera viðeigandi eftirlitsstofnunum viðvart.
Tilgangur eftirlitsins er verja réttindi starfsfólks, tryggja að kjarasamningar og lög séu virt og að iðnaðarstörf séu unnin undir þeirri faglegu ábyrgð sem reglur gera ráð fyrir.“
Sýnir mikilvægi vinnustaðaeftirlits
Benóný segir engan mega vinna vinnu iðnaðarmanna nema hafa til þess tilskilin réttindi.
„Það má auðvitað hafa einhverja svona aðstoðarmenn með sér en einhver sem er menntaður í greininni þarf að vinna vinnuna.“
Segir Benóný málið sýna hvað vinnustaðaeftirlit stéttarfélaganna sé mikilvægt.
„Það væri eðlilegt tekið væri upp einhvers konar gæðakerfi sem sýndi fram á það að einstaklingar með viðeigandi menntun væru að vinna þessi verk í raun og veru. Fyrir fólkið sem er að kaupa húsnæði, hvort viltu búa í húsnæði þar sem einhver fagmenntaður hefur unnið verkin eða ófagmenntaður sem hefur ekki sömu þekkingu?“
Heimild: Mbl.is
Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Höfðu eftirlit með 100 fyrirtækjum í haust
Efni: Telja fagmenntun og öryggismálum ábótavant











