Home Fréttir Í fréttum Þjótandi ehf. borar 85 metra undir Miklubraut með nýjum Vermeer línubor

Þjótandi ehf. borar 85 metra undir Miklubraut með nýjum Vermeer línubor

312
0
Þjótandi ehf. borar 85 metra undir Miklubraut með nýjum Vermeer línubor
Á myndum frá Rúko af afhendingunni eru Nils Bjarni Jóhannsson, yfirborstjóri Þjótanda, Ólafur Einarsson, eigandi Þjótanda, og Arnar Pétursson, sölumaður Vermeer og varahluta hjá Rúko.

Þjótandi ehf. borar 85 metra undir Miklubraut með nýjum Vermeer línubor

Þjótandi ehf. hefur tekið við nýjum Vermeer D40x55 DR Navigator línubor frá Rúko hf. Fyrsta verkefni vélarinnar er fyrir Veitur og felst í að bora um 85 metra leið undir Miklubraut fyrir háspennustrengjum.

Rúko greinir frá afhendingunni í færslu á Facebook og segir nýja borinn ætlaðan til lagnavinnu þar sem fara þarf undir vegi, stíga og önnur mannvirki án þess að grafa þurfi upp yfirborðið.

Aðferðin gerir kleift að leggja lagnir undir fjölfarin svæði með mun minna raski en hefðbundinn opinn skurðgröftur hefði í för með sér. Í fyrsta verkefninu verður farið undir Miklubraut, þar sem leggja á leið fyrir háspennustrengi á vegum Veitna.

Sérhannaður fyrir stýrða borun

Vermeer D40x55 DR Navigator er stýrður láréttur bor sem getur unnið með tvöföldum borstangakerfum og er meðal annars ætlaður til borunar í erfiðari jarðlögum og klöpp. Samkvæmt upplýsingum Vermeer-umboðsins í Danmörku er vélin með 140 hestafla vél og allt að 7.457 Nm snúningsvægi.

Rúko er umboðs- og þjónustuaðili Vermeer á Íslandi auk fjölda annarra framleiðenda vinnuvéla og tækjabúnaðar.

Þjótandi sérhæfir sig í lagnavinnu

Þjótandi ehf. á Hellu sinnir almennri jarðvinnu og vegagerð en hefur jafnframt sérhæft sig í lagnavinnu fyrir veitufyrirtæki og sveitarfélög. Fyrirtækið vinnur meðal annars við lagningu jarðstrengja, ljósleiðara, hitaveitu- og vatnslagna.

Fyrirtækið hefur áður komið að umfangsmiklum jarðstrengsverkefnum fyrir veitufyrirtæki. Sem dæmi samdi RARIK við Þjótanda árið 2016 um lagningu á tugum kílómetra af háspennustrengjum á Suðurlandi.

Heimild: Rúko hf

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Þjótandi ehf. með eina tilboðið í endurbyggingu Hringvegar um Hvolsvöll

Efni: Þjótandi ehf. borar 85 metra undir Miklubraut með nýjum Vermeer línubor