Hætt við uppbyggingu Tækniskólans í Hafnarfirði
Hætt hefur verið við uppbyggingu Tækniskólans við Flensborgarhöfn í Hafnarfirði.
Að því er segir í sameiginlegri yfirlýsingu Tækniskólans og Hafnarfjarðar hefur Hafnarfjarðarbæ ekki tekist að afhenda Tækniskólanum lóðina sem fyrirhuguð er undir skólann í tæka tíð og óvíst er hvenær af því getur orðið. Af þeim sökum hefur undirbúningur og hönnun nýbyggingarinnar þegar tafist um marga mánuði.
„Hafnarfjarðarbær og Tækniskólinn eru sammála um að ekki sé svigrúm til frekari tafa á verkefninu. Tækniskólinn og aðrir hagaðilar verkefnisins munu því nú kanna aðra möguleika á framtíðarstaðsetningu skólans á höfuðborgarsvæðinu,“ segir í tilkynningunni.
„Hafnarfjarðarbær og Tækniskólinn leggja áfram áherslu á gott samstarf og að næstu skref verði tekin með faglegum og farsælum hætti. Nánari upplýsingar verða veittar eftir því sem þeirri vinnu miðar áfram.“
Heimild: Mbl.is
Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Óvíst hvort Tækniskólinn rís í Hafnarfirði
Efni: Hætt við uppbyggingu Tækniskólans í Hafnarfirði












