Home Fréttir Í fréttum Óvíst hvort Tækniskólinn rís í Hafnarfirði

Óvíst hvort Tækniskólinn rís í Hafnarfirði

84
0
Óvíst hvort Tækniskólinn rís í Hafnarfirði
Á þessari lóð við Flensborgarhöfn í suðurbæ Hafnarfjarðar hefur verið áformað að nýr Tækniskóli verði byggður. Víðir Hólm

Óvíst hvort Tækniskólinn rís í Hafnarfirði

Óvíst er hvort nýr Tækniskóli rís við höfnina í Hafnarfirði, meðal annars vegna þess að Hafnarfjarðarbæ láðist að segja upp samningi við fyrri lóðarleigjanda.

Hafnarfjarðarbæ láðist að segja upp leigusamningi og því er nýbygging Tækniskólans við Hafnarfjarðarhöfn í uppnámi. Bærinn bauð aðra lóð á Völlunum sem skólinn afþakkaði.

Áform um að reisa skólann við Flensborgarhöfn í Hafnarfirði voru fyrst kynnt fyrir fimm árum, en Tækniskólinn er stærsti framhaldsskóli landsins með um 3.000 nemendur og er nú með starfsemi á nokkrum stöðum.

Á nýjum stað átti að koma starfseminni undir einu þaki á 30.000 fermetrum sem á að kosta 27 milljarða og til stóð að skólinn yrði fullbyggður 2029.

Talsverð uppbygging stendur til í þessu hverfi bæjarins sem meðal annars tekur mið af því að þarna rísi skólinn, og deiliskipulag vegna skólans var samþykkt í vor.

Áskoranir, segir bæjarstjóri

Þórður Þórarinsson bæjarstjóri í Hafnarfirði þáði ekki boð um viðtal, en í skriflegu svari frá bænum segir að „ákveðnar áskoranir séu í gangi“ varðandi framkvæmdina, án nánari útskýringar á því.

Samkvæmt heimildum fréttastofu er lóðin þegar í leigu og bænum láðist að segja leigusamningnum upp.

Þá herma heimildir fréttastofu að bærinn hafi boðið Tækniskólanum aðra lóð í Vallahverfi í Hafnarfirði sem skólinn þáði ekki.

Heimild: Ruv.is

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Semja um 27 milljarða króna Tækni­skóla í Hafnar­firði

Efni: Óvíst hvort Tækniskólinn rís í Hafnarfirði