Aukinn hagnaður hjá BYGG
Frá árinu 2021 hefur félagið hagnast um 4,3 milljarða.
Byggingarfélag Gylfa og Gunnars, BYGG, hagnaðist um 694 milljónir króna í fyrra, samanborið við 379 milljónir árið 2024.
Samstæðan velti 7.016 milljónum króna, þar af námu tekjur af verkframkvæmdum 5.852 milljónum. Árið 2024 námu heildartekjur 5.314 milljónum. Rekstrargjöld námu 6.150 milljónum samanborið við 4.661 milljón árið áður. Ársverk hjá samstæðunni voru 136 og fækkaði þeim um 5 milli ára. Frá árinu 2021 hefur félagið hagnast um 4,3 milljarða.

Í ársreikningi segir að verkefnastaða í lok árs 2025 hafi verið nokkuð sterk og verkbirgðir aukist talsvert frá fyrra ári vegna framkvæmda ársins umfram sölu og afhendingu íbúa. Í lok árs 2025 voru eignir samstæðunnar bókfærðar á 31.246 milljónir, þar af voru verkbirgðir 20.607 milljónir. Árið áður voru eignir bókfærðar á 27.040 milljónir, þar af voru verkbirgðir 17.338 milljónir. Eigið fé nam 13.147 milljónum í árslok 2025, samanborið við 12.396 milljónir í árslok 2024.
Félagið er í eigu Gylfa Ómars Héðinssonar og Gunnars Þorlákssonar. Stjórn leggur til að ekki verði greiddur arður til hluthafa í ár.
Heimild: Vb.is
Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Hagnaður BYGG jókst um 83% – 4.3 milljarða hagnaður á fimm árum
Efni: Aukinn hagnaður hjá BYGG












