Fertram hættir við lóðarkaup á Esjumelum
Tæplega 10 milljóna króna staðfestingargjald fæst ekki endurgreitt.
NFP ehf., félag hjónanna Guðmundar Fertrams Sigurjónssonar og Fanneyjar Kristínar Hermannsdóttur, óskaði nýlega eftir að falla frá úthlutun lóðar við Norðurgrafarveg 3 á Esjumelum.
Borgarráð samþykkti í gær að afturkalla úthlutun lóðarinnar.
Borgarráð hafði í mars síðastliðnum samþykkt að úthluta FNFP lóðinni og selja byggingarrétt að 1.316,8 fermetrum ofanjarðar fyrir 59,2 milljónir króna. Heildargreiðsla með gatnagerðargjöldum átti að vera um 119 milljónir króna.
Staðfestingargreiðsla að fjárhæð 9,6 milljónir króna hafði verið innt af hendi, eða sem samsvarar um 15% af sölu byggingarréttar. Í bréfi umhverfis- og skipulagssviðs kemur fram að staðfestingargreiðsla fáist ekki endurgreidd í samræmi úthlutunarskilmála.
Byggingarréttur undir atvinnuhúsnæði á lóðinni að Norðurgrafarvegi 3 var boðinn til sölu árið 2024.
Ekki kemur fram hvað Guðmundur Fertram og Fanney Kristín höfðu áformað á lóðinni.
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pétur Marteinsson og Heiða Björg Hilmisdóttir, lögðu fram bókun undir þessum lið og segja þar að borgin þurfi að vera vakandi hvort að það gefi vísbendingu um að aðstæður í efnahagslífinu séu farnar að bíta af alvöru á áform fyrirtækja þegar lóðarhafar kjósa að afsala sér úthlutun.
„Verðbólga, hátt vaxtastig og varfærni í fjármögnun virðast vera að hægja á uppbyggingu og draga úr eftirspurn eftir atvinnulóðum í Reykjavík. Tilefni er til að fylgjast vel með því hvort þetta sé einstakt tilvik eða merki um víðtækari samdrátt í fjárfestingum atvinnulífsins.“
Heimild: Vb.is
Efni: Fertram hættir við lóðarkaup á Esjumelum












