Framkvæmdir við virkjun toppþrýstings ganga vel
Framkvæmdir við virkjun toppþrýstings og tengd mannvirki á Þeistareykjum hafa gengið vel í sumar. Nú í lok ágúst er lagnavinna langt komin, gröftur hafinn fyrir toppvélargrunni og næst tekur við frágangur lagna, lekaprófanir og áframhaldandi jarðvinna.
Toppvélin bætir nýtingu jarðhitans
Toppvélin nýtir háan þrýsting jarðhitagufunnar til að framleiða rafmagn áður en gufan fer áfram inn í núverandi kerfi Þeistareykjastöðvar. Hingað til hefur þessi þrýstingur ekki verið nýttur til raforkuvinnslu með þeim hætti. Með toppvélinni verður því hægt að fá meiri raforku úr sömu gufu og bæta nýtingu jarðhitans án þess að auka gufumagnið að sama skapi.

Lagnavinna langt komin
Framkvæmdir hófust upp úr miðjum júní og ÞS verktakar frá Egilsstöðum ásamt sínum undirverktöum annan vinnuna. Stór hluti verksins í sumar hefur falist í gerð lagnaskurðar frá stöðvarhúsinu að skiljustöð, toppvél og fjölnýtingarhúsi og þaðan áfram að niðurdælingarsvæði.
Sigurður Óli Guðmundsson, staðarverkfræðingur toppvélaframkvæmdarinnar, segir að framkvæmdunum hafi miðað vel áfram í sumar. „Lagnavinnan er komin langt á veg, gröftur fyrir toppvélargrunn er hafinn og næstu vikur fara meðal annars í frágang lagna, lekaprófanir og áframhaldandi jarðvinnu,“ segir Sigurður Óli.

Gröftur hafinn fyrir toppvélargrunni
Samhliða lagnavinnunni hefur verið unnið að aðkomu að fyrirhugaðri toppvél. Fleygað grjót sem fellur til við gröft lagnaskurðanna hefur verið nýtt í fyllingar, jarðvegsmanir og til uppbyggingar vegar að toppvélargrunni.
Vegstokkar hafa jafnframt verið settir niður þar sem framkvæmdavegur liggur yfir núverandi gufulögn. Gröftur fyrir sjálfum toppvélargrunninum er einnig hafinn.
Á næstu vikum verður áfram unnið við upptöku svarðlags, gröft fyrir grunni og fyllingar á toppvélarplani.

Áhersla á frágang framkvæmdasvæðisins
Hildur Vésteinsdóttir, verkefnisstjóri á Mývatnssvæði, segir að mikil áhersla sé lögð á vandaðan frágang á Þeistareykjum. „Svarðlag sem tekið er upp vegna framkvæmdanna er varðveitt og nýtt strax aftur við uppgræðslu. Sú aðferð hefur reynst vel og hjálpar okkur að draga úr áhrifum framkvæmdanna á gróður og landslag,“ segir Hildur.
Reynsla fyrri framkvæmda á Þeistareykjum hefur nýst við þróun aðferða við meðhöndlun svarðlags með það að markmiði að bæta frágang og auka líkur á að staðbundinn gróður nái sér aftur á strik.

Heimild: Landsvirkjun
Efni: Framkvæmdir við virkjun toppþrýstings ganga vel












