
Arion lánar fyrir uppbyggingu í Þjórsárdal
„Um er að ræða eina umfangsmestu fjárfestingu sem í hefur verið ráðist í íslenskri ferðaþjónustu.“
Rauðukambar ehf., dótturfélag Bláa Lónsins hf., hafa undirritað lánssamning við Arion banka um fjármögnun áframhaldandi uppbyggingar í Þjórsárdal.
Verkefnið nær meðal annars til Fjallabaðanna, hótelsins Mountain Retreat í Rauðukömbum, Gestastofu Þjórsárdals auk smáhýsa og tjaldsvæðis við Selhöfða.
„Um er að ræða eina umfangsmestu fjárfestingu sem í hefur verið ráðist í íslenskri ferðaþjónustu,“ segir í fréttatilkynningu.
Fjárfesting Bláa lónsins í Þjórsárdal er metin á um 20 milljarða króna og kostnaður við endurbyggingu Fontana hleypur á milljörðum, eins og kom fram í nýlegri umfjöllun Viðskiptablaðsins.
Bláa lónið undirritaði samninga við íslenska ríkið um uppbyggingu og rekstur þjónustumiðstöðvar og ferðaþjónustu í Þjórsárdal í maí síðastliðnum.
Stefnt er að því að fyrsti hluti starfseminnar muni opna sumarið 2027 og gert er ráð fyrir að verkefnið verði að fullu komið í rekstur vorið 2028. Framkvæmdir eru þegar hafnar og í fullum gangi.
„Þjórsárdalur er eitt merkasta náttúru- og sögusvæði Íslands. Uppbyggingin byggir á langtímasýn um að auka aðgengi að náttúru og sögu dalsins og styrkja hann sem heildstæðan áfangastað, með virðingu fyrir sérstöðu svæðisins að leiðarljósi.“
Heimild: Vb.is
Efni: Arion lánar fyrir uppbyggingu í Þjórsárdal











