Home Fréttir Í fréttum 15.09.2026 Garðabær býður út vetrarþjónustu til þriggja ára

15.09.2026 Garðabær býður út vetrarþjónustu til þriggja ára

154
0
Hreinsitækni lægst í hreinsun gatna í Garðabæ – býður 55,3 milljónir
Mynd: Garðabær

Garðabær býður út vetrarþjónustu til þriggja ára

Garðabær hefur auglýst EES-útboð á vetrarþjónustu stofnanalóða og húsagatna í sveitarfélaginu næstu þrjá vetur. Verkið felur í sér snjóruðning og hálkueyðingu á húsagötum og bílastæðum við helstu stofnanir bæjarins.

Útboðið ber heitið „Vetrarþjónusta stofnanalóða og húsagatna í Garðabæ 2026–2029“ og nær samningstíminn yfir veturna 2026–2027, 2027–2028 og 2028–2029.

Um er að ræða þjónustu við húsagötur í Garðabæ auk bílastæða við leikskóla, grunnskóla, íþróttamiðstöðvar, kirkjur og aðrar stofnanir.

Vetrarþjónusta á 300 kílómetrum húsagatna

Samkvæmt útboðslýsingu eru helstu áætluðu magntölur:

  • Húsagötur – 300 km
  • Leikskólar – 870 m²
  • Grunnskólar – 710 m²
  • Íþróttamiðstöðvar – 340 m²
  • Kirkjur – 750 m²
  • Aðrar stofnanir – 250 m²

Verktaki mun annast bæði snjóruðning og hálkueyðingu á þeim svæðum sem útboðið tekur til.

Samningurinn er því umfangsmikill þjónustusamningur sem tryggja á aðgengi og öryggi á húsagötum og við helstu opinberu stofnanir Garðabæjar yfir vetrartímann.

Tilboðsfrestur til 15. september

Útboðsgögn eru aðgengileg á rafrænu formi í gegnum útboðsvef COWI: https://mannvit.ajoursystem.net/ frá kl. 17:00 þann 13. ágúst 2026.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti fyrir kl. 10:15 þriðjudaginn 15. september 2026.

Fundargerð vegna opnunar tilboða verður send öllum bjóðendum að opnun lokinni.

Heimild: Garðabær