Home Fréttir Í fréttum Brúin yfir Borgarfjörð lokuð í tvær nætur

Brúin yfir Borgarfjörð lokuð í tvær nætur

50
0
Brúin yfir Borgarfjörð lokuð í tvær nætur
Hringvegurinn í gegnum Borgarnes frá Borgarbraut að brúnni yfir Borgarfjörð verður lokaður vegna fræsingar í kvöld, sunnudag 16. ágúst og mánudagskvöld 17. ágúst, milli klukkan 21 og 7. RÚV – Einar Rafnsson

Brúin yfir Borgarfjörð lokuð í tvær nætur

Brúin yfir Borgarfjörð verður lokuð í kvöld og annað kvöld, milli klukkan 21:00-7:00, vegna fræsingar.

Hringvegurinn í gegnum Borgarnes frá Borgarbraut að brúnni yfir Borgarfjörð verður lokuð í kvöld, sunnudag, milli klukkan níu til sjö í fyrramálið, vegna fræsingar. Sama lokun verður annað kvöld og fram á þriðjudagsmorgun. Hjáleið um Borgarfjarðarbraut er merkt sunnan við brúna.

Vegagerðin vekur athygli á að viðgerðir og aðrar vegaframkvæmdir eiga sér nú stað um allt land. Búast má við steinkasti og jafnvel töfum vegna þessa. Hraði er tekinn niður á flestum vinnusvæðum og eru vegfarendur beðnir um sýna aðgát og tillitsemi og halda 50 metrum á milli bíla til að minnka líkur á skemmdum vegna steinkasts.

Þá verður brúin yfir Jökulsá á Fjöllum að mestu lokuð alla virka daga frá og með morgundeginum og fram í miðjan september. Bílum verður hleypt yfir nokkrum sinnum á dag. Brúin verður opin um helgar og frá 19 á kvöldin til átta á morgnana.

Heimild: Mbl.is

Efni: Brúin yfir Borgarfjörð lokuð í tvær nætur