Home Fréttir Í fréttum Starfsmaður reyndi að bregðast við eldsvoðanum

Starfsmaður reyndi að bregðast við eldsvoðanum

44
0
Starfsmaður reyndi að bregðast við eldsvoðanum
Ekki var við neinn að sakast er eldur kom upp á tríðaverkstæði í Grafarvogi í dag. mbl.is/Karítas

Starfsmaður reyndi að bregðast við eldsvoðanum

Betur fór en á horfðist þegar eldur kom upp í trésmíðaverkstæði við Gylfaflöt 3 í Grafarvogi í morgun.

Maðurinn sem fluttur var á slysadeild eftir eldsvoðann er ekki talinn alvarlega slasaður.

Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var hann starfsmaður á verkstæðinu og reyndi að bregðast við aðstæðunum eftir fremsta megni.

Slökkviliðið staðfesti jafnframt í samtali við mbl.is að eldurinn hefði kviknað í útsogskerfi hússins og ekki væri við neinn að sakast.

Heimild: Mbl.is