
Breikka og styrkja Laugarvatnsveg
Lagfæra leið að Gullfossi og Geysi
Unnið er þessa dagana að styrkingu og breikkun Laugarvatnsvegar í áttina að Geysi og Gullfossi. Undir er þriggja kílómetra kafli frá þorpinu að Laugarvatni til austurs að bænum Hjálmsstöðum.
Verkið felst í því að skipta um jarðveg fyrir breikkun í köntum, fræsa upp núverandi slitlag á veginum, jafna það út og breikka veginn lítils háttar. Þá verður keyrt að jafnaði 20 cm þykkt burðarlag yfir, ræsi endurnýjuð og malbikað yfir. „Verkinu miðar vel og allt er á áætlun,” segir Óskar Ólafsson hjá Óskataki, sem hefur þessa framkvæmd með höndum.
Heimild: Mbl.is











