Góður gangur í gerð nýrra ofanflóðavarna í Neskaupstað
Framkvæmdir við ofanflóðavarnir við Nes- og Bakkagil í Neskaupstað hafa gengið vel að undanförnu og eru töluvert á undan upprunalegri tímaáætlun.
Lokið er við uppsetningu 14 af 20 keilum og búið er að setja upp um 70% af þvergarði. Í júní hófst að auki vinna við nýtt fjölskyldusvæði.
Hefur jarðvinna og formun lands kringum nýja strandblakvelli verið í forgangi og hafa þeir formlega verið teknir í notkun undir æfingar.
Heimild: Fjarðabyggð












