Home Fréttir Í fréttum Gjaldþrotum fjölgar á milli ára

Gjaldþrotum fjölgar á milli ára

83
0
Gjaldþrotum fjölgar á milli ára
Gjaldþrotum fjölgaði á milli ára. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Gjaldþrotum fjölgar á milli ára

Á öðrum ársfjórðungi 2026 voru 334 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta sem er 12% aukning miðað við sama tímabil árið 2025 þegar 299 fyrirtæki urðu gjaldþrota.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagstofunni.

Af þeim 334 fyrirtækjum sem tekin voru til gjaldþrotaskipta voru 121 með virkni á fyrra ári, þ.e. höfðu rekstrartekjur eða greiddu laun árið 2025. Gjaldþrotum virkra fyrirtækja fjölgaði um 23% miðað við sama tímabil fyrra árs.

Örlítil fjölgun nýskráninga

Hjá þeim virku fyrirtækjum sem tekin voru til gjaldþrotaskipta á öðrum fjórðungi 2026 störfuðu að jafnaði 645 árið 2025.

Á þessu sama tímabili ársins í ár voru nýskráð 854 fyrirtæki í atvinnurekstri nýskráð og fjölgar þeim því lítillega á milli ára en á sama tímabili í fyrra voru 844 fyrirtæki nýskráð.

Flestar nýskráningar voru í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð eða 133 sem er fækkun um 6% miðað við sama tímabil fyrra árs.

Heimild: Mbl.is