Fjölmennt útkall eftir að steypubíll hafnaði í á
Lögregla, sjúkralið og björgunarsveitir hafa verið kallaðar út að Sultartangavirkjun eftir að steypubíll hafnaði þar ofan í Þjórsá.
Að sögn lögreglunnar á Suðurlandi var einn einstaklingur í bílnum og eru litlar upplýsingar að fá um líðan hans að svo stöddu.
Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur einnig verið kölluð út og er á leiðinni á slysstað.
Heimild: Mbl.is












