Náði að koma sér upp á þak steypubílsins
Fjölmennt viðbragðslið var kallað út rétt fyrir klukkan 20 í kvöld eftir að steypubíll fór út af brú yfir Þjórsá við Sultartangavirkjun og hafnaði í ánni.
Lögregla, sjúkralið, björgunarsveitir voru kallaðar á vettvang ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Að sögn lögreglunnar á Suðurlandi var einn í bílnum og náði hann af sjálfsdáðum að koma sér út og upp á þak bílsins þar sem hann beið bjargar.
Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti manninn á bráðamóttöku Landspítalans.
Heimild: Mbl.is












