Home Fréttir Í fréttum Eina til­boðinu í ráðhúströppurnar hafnað og verkið boðið út að nýju

Eina til­boðinu í ráðhúströppurnar hafnað og verkið boðið út að nýju

137
0
Eina til­boðinu í ráðhúströppurnar hafnað og verkið boðið út að nýju
Til stendur að endurgera tröppurnar, sem eru svo illa farnar að hluta þeirra hefur verið lokað. Árborg

Eina til­boðinu í ráðhúströppurnar hafnað og verkið boðið út að nýju

Eigna- og veitunefnd Árborgar hefur samþykkt að hafna eina tilboðinu sem barst í endurgerá tröppunum við ráðhúsið á Selfossi, sem eru afar illa farnar.

Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á rúmar 69 milljónir króna en aðeins eitt tilboð barst, frá fyrirtækinu Vörðufelli, upp á tæpar 110 milljónir króna.

Verkið verður boðið út að nýju í haust.

Endurbæturnar hafa verið til umræðu í nokkur ár en verið slegið á frest, meðal annars vegna fjárskorts. Uppfærð hönnun og útlit á tröppunum var kynnt á fundi Eigna- og veitunefndar þann 27. janúar síðastliðinn og verkið boðið út í byrjun sumars.

Til stóð að verkinu yrði lokið 1. október næstkomandi.

Heimild: Visir.is