Home Fréttir Í fréttum Fjarðabyggð ræðst í endurbætur á Dalborg og Breiðdalsskóla

Fjarðabyggð ræðst í endurbætur á Dalborg og Breiðdalsskóla

24
0
Fjarðabyggð ræðst í endurbætur á Dalborg og Breiðdalsskóla
Myndir: Fjarðabyggð

Fjarðabyggð ræðst í endurbætur á Dalborg og Breiðdalsskóla

Þrjú viðhalds- og endurbótaverkefni eru nú í gangi eða að hefjast hjá Fjarðabyggð. Um er að ræða framkvæmdir við leikskólann Dalborg á Eskifirði, Grunnskólann á Reyðarfirði og Breiðdalsskóla. Öll verkin eru unnin af VHE.

Framkvæmdirnar eru hluti af áframhaldandi viðhaldi og uppbyggingu þjónustubygginga sveitarfélagsins með það að markmiði að bæta aðstöðu nemenda, barna og starfsfólks.

Eldri hluti Dalborgar endurnýjaður

Stækkun leikskólans Dalborgar á Eskifirði var tekin í notkun á síðasta ári og hefur nýja viðbyggingin bætt aðstöðu leikskólans verulega.

Nú er ráðist í endurbætur á eldri hluta húsnæðisins sem byggður var árið 1997. Að framkvæmdum loknum mun leikskólinn mynda eina heild undir starfsemina á Eskifirði.

Helstu verkþættir eru:

  • Uppsetning loftræstikerfis
  • Endurnýjun gólfefna
  • Endurnýjun kerfislofta
  • Nýtt lýsingarkerfi
  • Málun og yfirborðsfrágangur

Áætlað er að framkvæmdum við Dalborg ljúki 12. ágúst 2026.

Frá undirritun samnings: Ingólfur Hreimsson, deildarstjóri VHE og Jóna Ánrý Þórðardóttir, bæjarstjóri

Ný klæðning og gluggar við skólann á Reyðarfirði

Við eldri byggingu Grunnskólans á Reyðarfirði stendur yfir vinna við:

  • Klæðningu útveggja
  • Ísetningu nýrra glugga

Framkvæmdirnar ná til einnar hliðar byggingarinnar og er gert ráð fyrir að þeim ljúki í júlí 2026.

Þak Breiðdalsskóla endurnýjað

Jafnframt hefur verið undirritaður verksamningur vegna endurnýjunar þaks Breiðdalsskóla.

Framkvæmdir eiga að hefjast í lok júní, að því gefnu að veður leyfi.

Verkið felur meðal annars í sér:

  • Niðurrif núverandi þakklæðningar
  • Yfirferð einangrunar
  • Nýja þakklæðningu
  • Uppsetningu nýs þakpappa

Framgangur verksins er að hluta háður veðurskilyrðum þar sem fjarlægja þarf eldra þak áður en nýtt þak verður sett upp.

Áframhaldandi uppbygging þjónustumannvirkja

Framkvæmdirnar eru hluti af markvissri uppbyggingu og viðhaldi fasteigna Fjarðabyggðar. Með þeim er stefnt að því að bæta vinnuumhverfi starfsfólks og skapa betri aðstöðu fyrir börn og nemendur í sveitarfélaginu.

Heimild: Fjardabyggð

Efni: Fjarðabyggð ræðst í endurbætur á Dalborg og Breiðdalsskóla