Blástrengur ehf. kaupir Laugaveg 13
Einkahlutafélagið Blástrengur, í eigu Hauks Geirs Harðarsonar, hefur fest kaup á verslunarhúsnæði á jarðhæð Laugarvegar 13, sem stendur á horni Smiðjustígs og Laugarvegar.
Seljendur eru einkahlutafélagið Hafsjór ehf., félag í eigu hjónanna Elmars Hallgríms Hallgrímssonar og Svandísar Rúnar Ríkarðsdóttur.
Um er að ræða eitt eftirsóknarverðasta verslunarhúsnæði í miðbæ Reykjavíkur. Heildarstærð eignarinnar er 720,2 fermetrar, sem skiptist í tvö verslunarrými ásamt kjallara með vörumóttöku. Verð samkvæmt kaupsamningi nam 420 milljónum króna.
Í húsnæðinu eru annars vegar Flying Tiger og hins vegar Varma Reykjavík, til húsa.
Heimild: Vb.is












