Home Fréttir Í fréttum „Mikil þolinmæði og vinna“ – Sambyggð 14 loks á leið í endurbætur

„Mikil þolinmæði og vinna“ – Sambyggð 14 loks á leið í endurbætur

28
0
„Mikil þolinmæði og vinna“ – Sambyggð 14 loks á leið í endurbætur
Sambyggð 14 var reist árið 2019 og vakti mikla athygli sem fyrsta fjölbýlishúsið sem byggt var í Þorlákshöfn í um tvo áratugi. Ljósmynd: Hamingjuhöfn/Sigmar Örn

„Mikil þolinmæði og vinna“ – Sambyggð 14 loks á leið í endurbætur

Þegar fyrstu íbúarnir fluttu inn í Sambyggð 14 í Þorlákshöfn árið 2020 voru miklar væntingar bundnar við húsið. Fjölbýlið vakti athygli sem fyrsta fjölbýlishúsið sem reist var í bænum í um tvo áratugi og allar 15 íbúðirnar seldust á skömmum tíma.

Nú, sex árum síðar, hefur húsfélagið auglýst útboð vegna umfangsmikilla endurbóta á húsinu eftir langa og erfiða sögu sem einkenndist af kvörtunum um byggingargalla, skemmdir og óuppgerð ágreiningsmál.

Samkvæmt útboðsgögnum felast framkvæmdirnar meðal annars í því að rífa eldri klæðningar, steypa undirstöður undir nýtt gluggakerfi, stækka svalir, setja upp nýjar svalalokanir og ráðast í ýmsar aðrar endurbætur utanhúss. Verklok eru áætluð 8. apríl 2027.

Á meðal framkvæmda sem boðnar eru út eru nýjar svalalokanir, stækkun svala og endurbætur á ytra byrði hússins. Ljósmynd: Hamingjuhöfn/Sigmar Örn

Draumurinn sem breyttist í vonbrigði

Þegar Sambyggð 14 var kynnt árið 2019 var verkefnið talið marka tímamót á húsnæðismarkaði í Þorlákshöfn. Um var að ræða nýstárlega byggingaraðferð og hagkvæmar íbúðir sem vöktu mikinn áhuga.

En fljótlega eftir að íbúar fluttu inn fóru að koma í ljós ýmis vandamál.

Þegar Kjarninn fjallaði um málið árið 2022 lýstu íbúar meðal annars vatnsleka, sprungum í veggjum og loftum, brotnu parketi, brotnum flísum og skemmdri klæðningu. Á þeim tíma var húsfélagið komið af stað í undirbúningi að frekari aðgerðum vegna stöðu hússins.

Ein þeirra sem steig fram var Ástrós Helga Hilmarsdóttir, íbúi í húsinu. Hún sagði þá frá því hvernig fyrstu vandamálin hefðu komið í ljós aðeins nokkrum dögum eftir að hún flutti inn. Á einum tímapunkti lýsti hún því að henni liði eins og henni væri „haldið í gíslingu“ og sagði jafnframt að það væri „í raun betra að rífa húsið en reyna að laga það“.

Í sama viðtali lýsti hún því hvernig hún hefði orðið vör við galla í íbúðinni fljótlega eftir afhendingu og að hún hefði misst trú á að lausn fengist á málinu.

Mikil þolinmæði og vinna

Nú, fjórum árum síðar, er loksins að komast hreyfing á málið eftir mikla vinnu og þolinmæði af hálfu íbúanna.

„Það leggst auðvitað bara mjög vel í mig að hefja endurbætur á Sambyggð eftir allan þennan tíma. Það hefur verið langt og strangt ferli að komast á þennan stað. Mikil þolinmæði og vinna sem er búin að fara í þetta mál,“ segir Ástrós í samtali við Hamingjuhöfn.

Hún segir íbúana horfa bjartsýnni augum til framtíðar en áður.

„Ég held að ég og allir íbúar sem búa þarna séum bara spennt fyrir að hefja þessar endurbætur og þakklát fyrir að þetta sé loksins að fara að gerast.“

Sambyggð 14 í Þorlákshöfn. Húsfélagið hefur nú auglýst útboð vegna umfangsmikilla endurbóta á fjölbýlishúsinu eftir margra ára ferli. Ljósmynd: Hamingjuhöfn/Sigmar Örn

Íbúarnir greiða kostnaðinn sjálfir

Þrátt fyrir að framkvæmdirnar séu nú loksins að fara af stað segir Ástrós að kostnaðurinn lendi að mestu á íbúunum sjálfum.

„Við berum allan kostnað sjálf. Við fengum greidda byggingastjóratryggingu sem var bara klink, hitt lendir á okkur,“ segir hún.

Það þýðir að þeir íbúar sem keyptu íbúðirnar með von um öruggt og hagkvæmt húsnæði standa nú sjálfir undir kostnaði við umfangsmiklar endurbætur á húsinu.

Þótt framkvæmdirnar marki tímamót fyrir Sambyggð 14 er ljóst að leiðin að þessum áfanga hefur verið bæði löng, erfið og kostnaðarsöm fyrir íbúana.

Fyrir íbúa Sambyggðar 14 snýst verkefnið ekki aðeins um endurbætur á húsinu sjálfu. Fyrir marga þeirra markar það tímamót eftir margra ára óvissu, bið og baráttu við að fá úrlausn á málum sem komu upp skömmu eftir að þeir fluttu inn. Nú eru framkvæmdir loksins fram undan, en kostnaðurinn við þær fellur á íbúana sjálfa.

Heimild: Hamingjuhofn.is