Home Fréttir Í fréttum Flýta viðhaldi gangstéttar eftir slysið

Flýta viðhaldi gangstéttar eftir slysið

15
0
Flýta viðhaldi gangstéttar eftir slysið
Soffía er marin eftir að hafa dottið fram fyrir sig á gangstéttinni. Ljósmynd/Aðsend

Flýta viðhaldi gangstéttar eftir slysið

Viðhaldi á illa útilátinni gangstétt í Rimahverfi í Grafarvogi verður hrundið af stað á næstu dögum í kjölfar slyss sem varð um helgina.

Þetta kemur fram í svari Reykjavíkurborgar við fyrirspurn mbl.is.

Soffía Jóhannesdóttir, 93 ára íbúi á hjúkrunarheimilinu Eir, átti leið um gangstéttina og féll fram fyrir sig úr hjólastól er annað framhjól stólsins festist í einni af fjölmörgum sprungum gangstéttarinnar.

Var á áætlun

Soffía marðist í andliti en slapp við alvarlega áverka á borð við beinbrot og heilahristing.

Samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg voru viðgerðir og viðhald á þessari tilteknu gangstétt nú þegar á áætlun í sumar og hefur þeim verið flýtt vegna slyssins.

Mælingar áttu að hefjast í dag en gætu tafist vegna veðurs, en það er rigning í kortunum.

Heimild: Mbl.is