Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 30.06.2026 Sambyggð 14 í Þorlákshöfn: Viðhald og Endurbætur 2026

30.06.2026 Sambyggð 14 í Þorlákshöfn: Viðhald og Endurbætur 2026

143
0
Sambyggð 14 í Þorlákshöfn: Viðhald og Endurbætur 2026

Sambyggð 14 í Þorlákshöfn: Viðhald og Endurbætur 2026

Húsfélagið Sambyggð 14 í Þorlákshöfn óskar eftir tilboðum í verkið:

SAMBYGGÐ 14 ÞORLÁKSHÖFN – VIÐHALD OG ENDURBÆTUR 2026

Um er að ræða viðhald og endurbætur utanhúss á húsinu.

Verkið felst í að rífa eldri klæðningar, grafa fyrir og steypa undirstöður undir gluggakerfi, steypa stéttar, stækka svalir, setja upp nýjar svalalokanir o.fl.

Verklok eru 8. apríl 2027

Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með mánudeginum 15. júní 2026. Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu hafa samband við Guðmund Hjaltason á skrifstofu Eflu á Suðurlandi í síma 412 6900, eða með tölvupósti í netfangið gudmundur.hjaltason@efla.is og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá í kjölfarið útboðsgögnin send í tölvupósti.

Tilboðum skal skila á skrifstofu Eflu hf að Austurvegi 1-5 á Selfossi fyrir kl. 14.00 þriðjudaginn 30. júní 2026.  og verða þau opnuð þar að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

Húsfélagið að Sambyggð 14, Þorlákshöfn

 

„Leitar þú að verktaka? Skoðaðu fyrirtækjaskrá VERKTAKAR.IS”