Fjórða hver íbúð meira en ár á sölulista
Raunverð íbúða hefur lækkað og lengri tíma tekur að selja þær en áður. Húsaleiga hefur staðið í stað að raunvirði undanfarið ár.
Mjög hefur hægt á fasteignamarkaði og nú er svo komið að nærri fjórða hver íbúð hefur verið á söluskrá í meira en tólf mánuði. Fyrir ári síðan átti það við um rúmlega sjöttu hverja íbúð.
Sala nýrra íbúða gengur treglegar en áður. Helmingur þeirra hefur verið á sölu í meira en 260 daga en fyrir ári síðan hafði helmingur nýrra íbúða verið á söluskrá í 183 daga eða meira.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í mánaðarskýrslu Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.
Ásókn í óverðtryggð íbúðalán hefur aukist undanfarið. Þetta er nokkur breyting frá fyrra ári þegar verðtryggð lán frá lífeyrissjóðum voru allsráðandi. Samkvæmt skýrslu HMS hafa bankarnir lítið nýtt sér undanþáguheimildir frá hámarki greiðslubyrðarhlutfalls en á móti kemur að hærra hámarksveðsetningarhlutfall hefur nýst fyrstu kaupendum.
Heimild: Ruv.is












