Garðabær vinnur að framtíðarlausn fyrir Klaustrið við Holtsbúð 87
Garðabær hefur gripið til aukinna öryggisráðstafana við Holtsbúð 87, betur þekkt sem Klaustrið, eftir að ítrekuð innbrot, skemmdarverk og óleyfilegur aðgangur hafa átt sér stað í húsinu undanfarna mánuði. Samhliða er unnið að því að móta framtíðarnýtingu og endurbyggingu hússins.
Húsnæðið stendur nú autt á meðan sveitarfélagið metur möguleika á framtíðarnotkun þess. Að sögn Garðabæjar hefur fólk farið inn í bygginguna í leyfisleysi, rúður verið brotnar og skemmdir unnar á lokunum sem bærinn hefur ítrekað sett upp til að tryggja öryggi á svæðinu.
Til að bregðast við stöðunni hefur Garðabær hafið vöktun á húsinu og vinnur nú að uppsetningu merkinga og eftirlitsmyndavéla. Vonast er til að þessar ráðstafanir dugi til að koma í veg fyrir frekari skemmdir.
Áætlanir um framtíð hússins fyrir árslok
Garðabær segir mikinn vilja vera til staðar að koma húsinu aftur í notkun og gefa því nýtt hlutverk. Stefnt er að því að ákvarðanir um framtíðarnýtingu byggingarinnar liggi fyrir fyrir lok árs 2026.
Í framhaldi af þeirri ákvörðun verður ráðist í nauðsynlegar endurbætur með það að markmiði að þar geti starfsemi sem samræmist sérstöðu hússins og umhverfisins hafist á ný.
Fyrra samstarfsverkefni gekk ekki eftir
Í apríl 2024 óskaði Garðabær eftir samstarfsaðila til að kaupa eða leigja húsnæðið og taka þátt í endurbótum, viðhaldi og rekstri þess. Samstarfssamningur var undirritaður í lok árs 2024, en verkefnið gekk ekki eftir samkvæmt áætlun.
Fyrr á þessu ári ákvað bæjarráð því að hefja skoðun á öðrum leiðum varðandi framtíðarnýtingu og endurbyggingu Klaustursins.
Kvöð um samfélagslega starfsemi til ársins 2028
Holtsbúð 87 var áður í eigu Sankti Jósefssystra. Í kaupsamningi Garðabæjar og systranna er kvöð sem gildir til ársins 2028 um að húsnæðið verði nýtt fyrir starfsemi í þágu aldraðra eða aðra sambærilega starfsemi á sviði mannúðar-, heilbrigðis-, barna- eða ungmennamála.
Sú kvöð setur ákveðinn ramma um framtíðarnýtingu hússins og mun hafa áhrif á þær lausnir sem sveitarfélagið getur valið á næstu misserum.
Heimild: Garðabær
Efni: Garðabær vinnur að framtíðarlausn fyrir Klaustrið við Holtsbúð 87












