Home Fréttir Í fréttum Hundraða þúsunda kostnaður á íbúa

Hundraða þúsunda kostnaður á íbúa

12
0
Hundraða þúsunda kostnaður á íbúa
Auknar kröfur um fráveitur eru yfirvofandi með tilskipun ESB. mbl.is/Árni Sæberg

Hundraða þúsunda kostnaður á íbúa

Mikill kostnaður blasir við á komandi árum við uppbyggingu og rekstur fráveitukerfa sveitarfélaga til að uppfylla núgildandi reglur og ekki síður til að mæta auknum kröfum í fráveitutilskipun ESB, sem innleiða þarf hér á landi.

Heildarkostnaður hefur verið talinn geta numið 78 til 127 milljörðum kr. Uppbyggingarkostnaður á íbúa á höfuðborgarsvæðinu er gróflega áætlaður á bilinu 124 þús. kr. til 201 þús. kr. og á landsbyggðinni frá 287 þús. kr. til 466 þús. kr. á íbúa.

„Í dreifðari byggðum getur kostnaður við uppbyggingu og rekstur fráveitukerfa orðið mun hærri á hvern íbúa en í stærra þéttbýli. Þetta getur leitt til mikils þrýstings á gjaldskrár og getur þetta skapað verulegt misræmi milli sveitarfélaga hvað varðar greiðslubyrði íbúa,“ segir á minnisblaði fyrir stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga.

Heimild: Mbl.is