Home Fréttir Í fréttum Framkvæmdir við Mjóeyrarhöfn yrðu lyftistöng fyrir Austurland allt

Framkvæmdir við Mjóeyrarhöfn yrðu lyftistöng fyrir Austurland allt

21
0
Framkvæmdir við Mjóeyrarhöfn yrðu lyftistöng fyrir Austurland allt
Séð yfir Mjóeyrarhöfn. Nýjustu svæðin eru fremst í mynd. Mynd: GG

Framkvæmdir við Mjóeyrarhöfn yrðu lyftistöng fyrir Austurland allt

Fjarðabyggð hefur birt stefnumótun fyrir Mjóeyrarhöfn til ársins 2040 og kynnti hana á íbúafundi í gær. Bæjarstjóri segir mikinn áhuga á lóðum við höfnina og mikil tækifæri fólgin í uppbyggingu.

Fjarðabyggð hefur undanfarið eitt og hálft ár unnið að greiningu með verkfræðistofunni Eflu, meðal annars með samtölum við hagaðila, sem er forsenda stefnumótunarinnar. Áherslan er á að nýta landfræðilega kosti hafnarinnar, sem eru margvíslegir.

Í greiningunni eru talin upp dæmi um starfsemi sem gæti byggst upp við Mjóeyrarhöfn. Þar má nefna flutningafyrirtæki, vöruhús og gámaþjónustu, en stærra farm- og gámasvæði er talið vera forgangsatriði í framkvæmdum. Talið er að þörf sé á allt að 82.000-115.000 fermetra gáma- og farmsvæði. Það er í dag um 60.000 fermetrar.

Raunverulegur áhugi á lóðum við höfnina

Fyrsti áfangi hafnarinnar byggðist upp fyrir um 20 árum síðan með tilkomu álvers Alcoa. Vinna er hafin við annan áfanga. Efni úr dýpkun annarra hafna hefur verið nýtt í landfyllingu og grafið hefur verið út fyrir nýjum lóðum. Næsta skref væri að lengja hafnarkantinn um 80 metra, en hann er um 380 metrar í dag.

Í stefnumótuninni er miðað við að stækka höfnina í þremur skrefum. Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri, segir að í samtölum við hagaðila, við greininguna, hafi komið fram skýr áhugi á uppbyggingunni og að hann hafi aukist eftir að byrjað var að kynna stefnumótun hafnarinnar í byrjun þessa mánaðar.

„Þegar liggja fyrir beiðnir frá ýmsum aðilum, bæði aðilum sem eru þegar á svæðinu og vilja bæta við sig en líka nýjum sem vilja koma upp starfsemi. Þetta er raunverulegur áhugi. Frekari framkvæmdir gætu jafnvel farið af stað í byrjun í næsta árs.“

Allt að tíu milljarða fjárfesting

Áætlað er að fjárfesting í uppbyggingu hafnarinnar nemi allt að 10 milljörðum króna fram til ársins 2040. Jóna Árný segir að uppbygging Mjóeyrarhafnar sé ekki bara tækifæri fyrir Fjarðabyggð, heldur Austurland allt.

„Það yrði gríðarleg lyftistöng til að nýta betur sóknarfærin fyrir Austurland allt. Þetta er stórskipahöfn þar sem stærstu skipin sem koma til Íslands hafa viðkomu. Það gefur okkur reynslu og sögu að segja þegar við ræðum við aðila sem við viljum laða að okkur.  Aukin flutningsgeta og betri tengingar skipta atvinnulífið máli. Uppbygging Mjóeyrarhafnar bætir þannig keðjuna fyrir önnur fyrirtæki.“

Stefnumótunin var kynnt á íbúafundi sem haldinn var í Grunnskólanum á Reyðarfirði klukkan 17:00 í gær. Samkvæmt tilkynningu var þar fjallað um tækifæri til vaxtar, fjárfestinga og aukins samkeppnisforskots fyrir Austurland, þar sem Mjóeyrarhöfn mun gegna lykilhlutverki í atvinnu- og samfélagsþróun svæðisins.

Heimild: Austurfrett.is

Efni: Framkvæmdir við Mjóeyrarhöfn yrðu lyftistöng fyrir Austurland allt