
Segir framkvæmdir hefjast í haust og ljúka vorið 2030
Framkvæmdir við fyrirhugaða Þjóðarhöll í Laugardal munu hefjast í haust og á vormánuðum ársins 2030 verður höllin fullrisin og tilbúinn vettvangur íþróttaleikja, að sögn verkefnastjóra framkvæmdarinnar.
Í vikunni greindi mbl.is frá því að teymi Íslenskra aðalverktaka hf. hefði orðið hlutskarpara í samkeppnisútboði og muni því annast framkvæmdina frá upphafi til enda; allt frá hönnun að fullkláruðu mannvirki.
Helgi Geirharðsson, verkefnastjóri Þjóðarhallar ehf., segir að framkvæmdaáætlun muni liggja skýrar fyrir þegar gengið hefur verið til endanlegra samninga við verktakann. Yfir sumarið verði unnið að því að ganga frá öllum formlegheitum og svo muni framkvæmdir hefjast strax þegar hausta tekur.
Bílastæðum fækki með þjóðarhöll
Þótt enn sé margt á huldu varðandi framkvæmdatíma og kostnað framkvæmdarinnar er það ljóst að bílastæðum mun fækka á svæðinu nema Reykjavíkurborg endurskoði deiliskipulag Þjóðarhallarreitsins.
Í núverandi deiliskipulagstillögu Reykjavíkurborgar fyrir Þjóðarhallarsvæðið frá 7. mars 2024 kemur skýrt fram að ekki verði gert ráð fyrir nýjum bílastæðum á lóðinni, heldur muni þeim fækka frá núverandi horfi þar sem hluti þeirra bílastæða sem nú standa við Laugardalshöll muni falla undir stækkaðan byggingarreit.
Í kynningum á uppbyggingu Þjóðarhallar er lögð áhersla á greiðan aðgang vistvænna fararmáta að Þjóðarhöllinni, svo sem borgarlínu, gangandi vegfarenda og hjólaumferðar.
Helgi segir það undir borgaryfirvöldum komið hvort horfið verði frá þeim áformum að fækka bílastæðum á svæðinu, enda hafi ákvörðunin verið í höndum borgarinnar frá upphafi.
„Það eru tækifæri til þess að búa til ný bílastæði þarna í kring þannig að það er bara ákvörðunarmál hjá borginni sjálfri hvort og hvernig þeir vilja bæta við bílastæðum á þau auðu svæði sem þarna eru til staðar.“

Framkvæmdalok á reiki
Áætluð framkvæmdalok hafa verið mjög á reiki frá því að viljayfirlýsing um byggingu Þjóðarhallarinnar var undirrituð af fulltrúum ríkis og Reykjavíkurborgar árið 2022.
Upphaflega átti Þjóðarhöllin að vera tilbúin til notkunar árið 2025, og var íþróttahreyfingin þess fullviss að hún gæti orðið vettvangur landsleikja á því ári.
Fyrir tveimur árum var svo áætlað að framkvæmdir hæfust árið 2025, enda útséð um að framkvæmdum yrði lokið þá.
Fullbyggð í tæka tíð fyrir HM í handknattleik
Í fjárlögum ríkisstjórnarinnar fyrir tímabilið 2026-2030 sem samþykkt voru árið 2025 var stefnt að því að þjóðarhöll yrði tekin í notkun síðla árs 2028, en í nýsamþykktri fjármálaáætlun fyrir tímabilið 2027-2031 er framkvæmdastefnan öllu óljósari og er þar einfaldlega stefnt að því að ný þjóðarhöll verði tekin í notkun á tímabili áætlunarinnar.
Nú binda framkvæmdaaðilar vonir við að höllin verði fullbyggð á vormánuðum árs 2030 – rétt í tæka tíð fyrir HM karla í handknattleik árið 2031 þar sem einn riðill mun fara fram á Íslandi.
„Þetta verður tilbúið einhvern tíma á þessum vordögum 2030,“ segir Helgi.
Verktakar tryggi sig með hærri verðmiða
Þá hefur áætlaður kostnaður framkvæmdanna risið um tæpa tvo milljarða á rúmum tveimur árum. Að sögn Helga orsakast kostnaðaraukningin af markaðsaðstæðum, til að mynda hækkandi stál- og olíuverði.
„Það og fleira hefur áhrif á byrgi erlendis og hefur líka áhrif á áhættuna í verktökunni,“ segir hann. „Það endurspeglast kannski í hærri tilboðum frá báðum verktökum til að tryggja sig í ljósi ástands heimsmála.“
Standi föstum fótum á sinni niðurstöðu
Þó séu fjölmörg hagræðingartækifæri til staðar sem útfæra mætti án þess að skerða gæði verkefnisins.
„Við erum með lista yfir svona tuttugu, þrjátíu atriði sem hægt er að skoða og ræða þar hagræðingarmöguleika,“ segir Helgi. Ekki sé þó hægt að ljóstra upp um það í hverju hagræðingarmöguleikarnir felist fyrr en formlegt samtal við verktakann hefur hafist.
„En samtalið mun ekki hefjast fyrr en að þessum biðtíma loknum, þar sem mótframbjóðandinn hefur ennþá tækifæri til að leita álits til dæmis kærunefndar vegna niðurstöðu útboðsins og varpa málinu þangað,“ segir Helgi.

Heimild: Mbl.is
Efni: Segir framkvæmdir hefjast í haust og ljúka vorið 2030











