Home Fréttir Í fréttum Veislusalurinn mun kosta um 77 milljarða

Veislusalurinn mun kosta um 77 milljarða

17
0
Veislusalurinn mun kosta um 77 milljarða
Donald Trump Bandaríkjaforseti stendur við framkvæmdasvæðið. AFP/Nishimura

Veislusalurinn mun kosta um 77 milljarða

Kostnaðurinn við nýjan veislusal Hvíta hússins sem Donald Trump Bandaríkjaforseti er að láta reisa hleypur á 600 milljónum bandaríkjadala eða um 77 milljörðum íslenskra króna, þar af kemur helmingur frá skattgreiðendum.

Trump hefur áður sagt að kostnaðurinn yrði 400 milljónir bandaríkjadala og að einkaaðilar, þar á meðal hann sjálfur, myndu standa straum af öllum kostnaði.

Kostnaðurinn hækkað um 400 milljónir

The Washington Post greindi fyrst frá en miðillinn hefur undir fórum sér afrit af kostnaðaráætlun sem verktaki veislusalarins útbjó fyrir ríkisstjórn Trumps.

Þegar Trump kynnti hugmyndina um veislusalinn fyrst á síðasta ári sagði hann að kostnaðurinn yrði um 200 milljónir dala „skattgreiðendalaust“. Nú liggur fyrir að skattgreiðendur muni leggja til um 300 milljónir bandaríkjadala eða um 38 milljarða króna.

Við gerð salarins var austurálma Hvíta hússins öll rifin. Þar voru skrifstofur forsetafrúarinnar til húsa.

Heimild: Mbl.is