Home Fréttir Í fréttum Fyrsta skóflustunga tekin að þjónustuhúsi Bláa Lónsins í Árnesi

Fyrsta skóflustunga tekin að þjónustuhúsi Bláa Lónsins í Árnesi

497
0
Fyrsta skóflustunga tekin að þjónustuhúsi Bláa Lónsins í Árnesi
Hartmann Kárason og Jón Bjarni Jóhannsson fyrir hönd Bláa Lónsins ásamt Arnari Bjarna Eiríkssyni frá Landsstólpa við fyrstu skóflustungu verkefnisins. Mynd: Aðsend.

Fyrsta skóflustunga tekin að þjónustuhúsi Bláa Lónsins í Árnesi

Fyrsta skóflustunga var tekin í vikunni að nýju þjónustuhúsi Bláa Lónsins í Árnesi. Húsið verður um 1.000 fermetrar að stærð og mun þjóna rekstri fyrirtækisins á svæðinu, þar á meðal Gestastofunni og Fjallaböðunum í Þjórsárdal, hótelinu í Hrauneyjum og allri starfsemi félagsins í Kerlingarfjöllum. Í húsinu verða meðal annars þvottahús, lagerar, bifreiðaþjónusta og kæli- og frystigeymsla.

Mynd: Aðsend.

Framkvæmdir eru í höndum Landsstólpa, fyrirtækis með heimilisfesti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.

Áætlað er að um tíu starfsmenn muni starfa í húsinu þegar starfsemi í Þjórsárdal hefst vorið 2028. Framkvæmdir eru nú hafnar og stefnt er að því að húsið verði tekið í notkun undir lok árs 2026.

Heimild: Dfs.is