Markholt
Mosfellsbær hefur undirritað samning við verktakafyrirtækið Fagurverk ehf. um umfangsmiklar framkvæmdir við endurnýjun veitukerfa í Markholti.
Framkvæmdirnar eru þegar hafnar og fela í sér heildarendurnýjun á helstu lögnum og innviðum götunnar.
Allar helstu veitulagnir endurnýjaðar
Samkvæmt upplýsingum frá Mosfellsbæ verður unnið að endurnýjun:
- Hitalagna
- Vatnslagna
- Götulýsingar
- Raflagna
- Fráveitulagna
Verkið er liður í áframhaldandi uppbyggingu og endurnýjun innviða í eldri hverfum sveitarfélagsins.
Framkvæmdum skipt í tvo áfanga
Stefnt er að því að framkvæmdum ljúki í október 2026.
Verkinu verður skipt upp í tvo áfanga:
- Áfangi 1: Markholt 1–9
- Áfangi 2: Markholt 9–24

Efri röð: Jóhanna Björg Hanssen, Þorsteinn Sigvaldason, Erna Rós Bragadóttir f.h. umhverfissviðs Mosfellsbæjar.
Neðri röð: Þóra M. Hjaltested bæjarstjóri og Bergur Þorgilsson fh. Fagurverks ehf.
Íbúafundur haldinn í maí
Íbúar í Markholti hafa þegar fengið upplýsingar um framkvæmdina og verða reglulegar uppfærslur birtar á vef Mosfellsbæjar.
Jafnframt verður íbúafundur haldinn fimmtudaginn 28. maí þar sem íbúum gefst kostur á að ræða við fulltrúa verkefnisins á skrifstofu Mosfellsbæjar í Kjarna.
Mosfellsbær bendir einnig á að íbúar geti sent inn ábendingar og fyrirspurnir í gegnum ábendingarkerfi sveitarfélagsins meðan framkvæmdir standa yfir.
Heimild: Mosfellsbær












