Home Fréttir Í fréttum Forskot íslenskrar byggingarlistar – Kengo Kuma

Forskot íslenskrar byggingarlistar – Kengo Kuma

53
0
Kengo Kuma heillaðist af Íslandi í heimsókn sinni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Japanski arkitektinn Kengo Kuma, sem staddur var hér á landi á dögunum, er á því að Japanir geti lært sitthvað af Íslendingum þegar kemur að byggingarlist.

„Það sýnist mér. Á seinni árum hefur Japan verið upptekið af því að fylgja bandarísku fyrirmyndinni að borgarhönnun. Hér virðist allt annað hugarfar vera við lýði og það heillar mig. Japan og Ísland geta sannarlega unnið saman og lært hvort af öðru.

Fáir staðir í heimi eru í betri og dýpri tengslum við náttúruna en Ísland. Í því liggur forskot ykkar á önnur ríki og það ættuð þið að færa ykkur í nyt,” segir Kuma sem er þekktur fyrir byggingar víða um heim, meðal annars Ólympíuleikvanginn í Tókýó sem reistur var fyrir leikana sem fram fóru 2021.

V&A í Dundee í Skotlandi sem Kuma hannaði.

Staðurinn lykilhugtak

„Staðurinn“ er lykilhugtak í hugsun og vinnu Kuma. Staður er eins kon ar skilgetið afkvæmi náttúrunnar og tímans og fram hjá honum verður ekki litið. Lykilspurningin er: Hvað þjónar viðkomandi stað? Kuma hef ur lýst því sem svo að hans hlutverk sé að ramma náttúruna inn, þannig að upplifa megi hana með dýpri og innilegri hætti.

Gagnsæi er líka lykilatriði, í hans huga. Þess vegna reynir hann sem mest að nota létt og náttúrulegt efni til að tryggja nýja tegund gagnsæis.

„Vandi nútímabyggingarlistar er alþjóðahyggjan. Ein hugmynd, ein aðferð, ein hönnun hefur verið notuð um heim allan. Og sama efnið, steypa, stál og gler. Þetta drepur ekki bara auðkenni staðarins, heldur ekki síður handverkið. Það er mikil synd fyrir mannkynið. Það sem virkar á einum stað þarf alls ekki að virka á öðrum,“ segir hann.

Nánar er rætt við Kengo Kuma í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins.

Heimild: Mbl.is