Home Fréttir Í fréttum Laugarvatn Fontana stækkar verulega – opnar nýja aðstöðu í júní

Laugarvatn Fontana stækkar verulega – opnar nýja aðstöðu í júní

114
0

Umfangsmiklar framkvæmdir við stækkun og endurbætur á Laugarvatn Fontana eru nú á lokastigi og stefnt er að opnun nýrrar aðstöðu um miðjan júní 2026.

Með framkvæmdunum verður aðstaðan verulega endurbætt og betur í stakk búin til að taka á móti gestum allt árið um kring.

Yfir 1.100 fermetra stækkun á Laugarvatn Fontana

Framkvæmdirnar hafa staðið yfir frá vori 2025 og eru í höndum E. Sigurðsson ehf.

Verkið felur meðal annars í sér:

  • um 1.120 fermetra viðbyggingar
  • nýjar laugar sem ná yfir um 600 fermetra
  • nýja gufu og sánu, samtals um 69 fermetra
  • ný tæknirými
  • nýjan laugabar
  • umfangsmikinn lóðarfrágang

Auk þess hefur verið unnið að jarðvinnu, uppsteypu, lagnavinnu og fullnaðarfrágangi innan- og utanhúss.

Framkvæmdir samhliða rekstri

Sérstök áskorun fólst í því að framkvæmdir fóru að stórum hluta fram samhliða rekstri Laugarvatn Fontana fram til október 2025.

Þetta kallaði á nákvæma verkstýringu, öryggisráðstafanir og samhæfingu framkvæmda til að tryggja öryggi gesta og lágmarka áhrif á upplifun þeirra.

Nýjar laugar, sána og hveragufa

Endurbæturnar fela meðal annars í sér:

  • nýja sánu með útsýni yfir Laugarvatn
  • nýja hveragufu sem byggir á sögu svæðisins
  • nýjar laugar við vatnsbakkann með fjölbreyttu hitastigi

Að sögn framkvæmdaraðila hefur verkefnið verið tæknilega flókið vegna samspils nýbygginga, eldri mannvirkja og náttúrulegra aðstæðna á svæðinu.

Styrkir stöðu Laugarvatns sem ferðamannastaðar

Við verklok verður aðstaða Laugarvatn Fontana verulega stærri og nútímalegri.

Framkvæmdin mun styrkja enn frekar stöðu Laugarvatns sem vinsæls áfangastaðar fyrir bæði innlenda og erlenda ferðamenn.

Heimild: E.Sigurðsson ehf.