Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 06.05.2026 Frágangur gangstétta í Haga- Holta- og Nesjahverfi á Akureyri – Útboð

06.05.2026 Frágangur gangstétta í Haga- Holta- og Nesjahverfi á Akureyri – Útboð

46
0
Mynd: Akureyri.is

Útboð:

Umhverfis- og mannvirkjasvið fyrir hönd Akureyrarbæjar óskar eftir tilboðum í frágang gangstétta í Haga- Holta- og Nesjahverfi á Akureyri.

Umhverfis- og mannvirkjasvið fyrir hönd Akureyrarbæjar óskar eftir tilboðum í frágang gangstétta í Haga- Holta- og Nesjahverfi á Akureyri. Verkið felst m.a. í lagningu jöfnunarlags og malbikun stétta, hellulögn úrtaka, hallandi hellulagðra kanta og staðsteypta kantsteina.

Helstu magntölur:

  • Malbikun um 4.700 m2
  • Jöfnun undir malbik um 4.700 m2
  • Hellur um 120 m2
  • Staðsteyptur kantsteinn um  1.150 m

Verkið er áfangaskipt, unnið á árunum 2026-2027 og skal að fullu lokið fyrir 30. september 2027.

Útboðsgögn verða afhent rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar frá 22. apríl 2026.

Hægt er að nálgast útboðsgögnin með því að smella HÉR!

Gögnin eru aðgengileg sjálfvirkt inn á þjónustugátt Akureyrarbæjar eftir að búið er að sækja um þau og eru þess vegna ekki send til bjóðanda sérstaklega.

Tilboðum skal skila á útboðsvef Akureyrarbæjar, eigi síðar en miðvikudaginn 6. maí kl. 11:15.