Home Fréttir Í fréttum Kælismiðjan Frost kaupir Mekatronik

Kælismiðjan Frost kaupir Mekatronik

14
0
Mynd: Vb.is

Kaupin eru liður í að styrkja kælismiðjuna á sviði sjálfvirkni og stýringar.

Kælismiðjan Frost hefur fest kaup á verkfræðistofunni Mekatronik. Kaupverðið er ekki uppgefið en fram kemur í tilkynningu að hluti þess er greiddur með hlutafé í Frost.

Í tilkynningu segir að kaupin séu liður í að styðja við þróun í átt að sjálfvirkni og stýringar hjá kælismiðjunni. Mekatronik sé ungt fyrirtæki en með áratuga reynslu starfsmanna á sviði hönnunar, sjálfvirkni og stýringa á breiðu sviði iðnaðar með ríka áherslu á sjávarútveg. Fagleg viðhaldsþjónusta og breytingar í skipum ásamt þjónustu rafbúnaðar fyrir útgerðir, verksmiðjur og annan iðnað hafi verið höfuð áhersla Mekaronik.

Haft er eftir Guðmundi Hannessyni framkvæmdastjóra Frost að rafmagnstækideild fyrirtækisins muni styrkjast með kaupunum:

„Að fá Mekatronik inn í hópinn okkar mun rafmagnstæknideildin okkar styrkjast til muna og renna stoðum undir enn sterkari einingu þvert á öll okkar sérsvið með aukinni sérþekkingu, slagkrafti og þjónustustigi við viðskiptavini beggja félaga ásamt TG raf sem Frost keypti á seinni hluta síðasta árs. Saman geta fyrirtækin boðið upp á mun víðtækari og fjölbreyttari þjónustu á öllum sviðum starfseminnar þar sem hlúð verður að kjarnastarfsemi fyrirtækjanna sem stefnt er á að auka og efla til framtíðar.“

Guðmundur Hannesson, framkvæmdastjóri Frost, mun taka við framkvæmdastjórn Mekatronik en að öðru leyti munu starfsmenn Mekatronik sinna verkefnum sem fyrr. Hjá félögunum munu starfa alls 117 manns á starfstöðvum á Akureyri, Grindavík, Garðabæ, Hafnarfirði, Selfossi og Kolding í Danmörku.

Heimild: Vb.is