Sveitarfélagið Reykjanesbær virðist glíma við fjárhagsvanda en fjöldi verktaka sem Morgunblaðið ræddi við lýsir því að greiðslur frá sveitarfélaginu berist oft mörgum vikum og jafnvel mánuðum eftir umsaminn tíma.
Einn verktakanna segir að þessa stundina eigi hann kröfu upp á tugi milljóna króna á hendur Reykjanesbæ en krafan hafi ekki verið greidd og engin svör berist frá sveitarfélaginu um hvenær greiðsla sé væntanleg. Verktakarnir lýsa því að dráttarvextir safnist upp á skuldir bæjarins en að Reykjanesbær hafi til þessa neitað að greiða dráttarvexti af skuldum sínum.
„Ég hef ekki fengið greiddar kröfurnar í heimabankanum heldur fæ ég millifærslur frá sveitarfélaginu fyrir upphaflegu skuldinni. Krafan sem safnar dráttarvöxtum stendur því enn ógreidd í heimabankanum, það er í raun bara lögbrot að greiða ekki lögmæta dráttarvexti,“ segir einn verktakanna.
Heimild: Mbl.is