Home Fréttir Í fréttum Verktakar fá greitt seint og illa

Verktakar fá greitt seint og illa

28
0
Ráðhús Reykjanesbæjar. Greiðslur Reykjanesbæjar til verktaka dragast á langinn. Morgunblaðið/Ómar

Sveit­ar­fé­lagið Reykja­nes­bær virðist glíma við fjár­hags­vanda en fjöldi verk­taka sem Morg­un­blaðið ræddi við lýs­ir því að greiðslur frá sveit­ar­fé­lag­inu ber­ist oft mörg­um vik­um og jafn­vel mánuðum eft­ir um­sam­inn tíma.

Einn verk­tak­anna seg­ir að þessa stund­ina eigi hann kröfu upp á tugi millj­óna króna á hend­ur Reykja­nes­bæ en kraf­an hafi ekki verið greidd og eng­in svör ber­ist frá sveit­ar­fé­lag­inu um hvenær greiðsla sé vænt­an­leg. Verk­tak­arn­ir lýsa því að drátt­ar­vext­ir safn­ist upp á skuld­ir bæj­ar­ins en að Reykja­nes­bær hafi til þessa neitað að greiða drátt­ar­vexti af skuld­um sín­um.

„Ég hef ekki fengið greidd­ar kröf­urn­ar í heima­bank­an­um held­ur fæ ég milli­færsl­ur frá sveit­ar­fé­lag­inu fyr­ir upp­haf­legu skuld­inni. Kraf­an sem safn­ar drátt­ar­vöxt­um stend­ur því enn ógreidd í heima­bank­an­um, það er í raun bara lög­brot að greiða ekki lög­mæta drátt­ar­vexti,“ seg­ir einn verk­tak­anna.

Heimild: Mbl.is