Home Fréttir Í fréttum Byggja á síðustu sjávarlóðinni á Seltjarnarnesi

Byggja á síðustu sjávarlóðinni á Seltjarnarnesi

4
0
Byggja á 381 fermetra einbýlishús á þessari lóð innan tíðar. mbl.is/Karítas

Sjávarlóðir á Seltjarnarnesi hafa lengi verið afar eftirsóttar og ekki er algengt að hús á sjávarlóðum fari á sölu.

Nú er útlit fyrir að byggt verði á síðustu sjávarlóðinni á Nesinu, Steinavör 8.

Við hlið þeirrar lóðar eru reyndar tvær aðrar en engin áform eru um byggingu þar.

Skipulags- og umferðarnefnd Seltjarnarness hefur afgreitt umsókn um að fá að byggja 381 fermetra einbýlishús á lóðinni en ekki komu neinar athugasemdir við grenndarkynningu.

Félag í eigu Baldvins

Lóðin að Steinavör 8 er í eigu Túnsteins ehf. Nýlega kom fram í Viðskiptablaðinu að Túnsteinn sé fjárfestingarfélag Baldvins Þorsteinssonar forstjóra Samherja.

Heimild: Mbl.is