Home Fréttir Í fréttum Bjóða út byggingu nýs leikskóla

Bjóða út byggingu nýs leikskóla

47
0
Undrabrekka Nýr leikskóli verður brátt byggður á Seltjarnarnesi. Tölvumynd/Andrúm arkitektar

„Þarna get­um við sam­einað alla leik­skóla­starf­sem­ina á ein­um stað. Hún hef­ur verið dá­lítið dreifð,“ seg­ir Þór Sig­ur­geirs­son, bæj­ar­stjóri á Seltjarn­ar­nesi.

Seltjarn­ar­nes­bær hef­ur aug­lýst útboð vegna bygg­ing­ar nýs leik­skóla við Suður­strönd. Frest­ur til að skila til­boðum er til 18. júlí en gert er ráð fyr­ir að fram­kvæmd­ir hefj­ist með haust­inu. „Þetta mun taka tvö ár í bygg­ingu. Við finn­um heppi­leg­an tíma til að taka fyrstu skóflu­stungu með krökk­un­um á leik­skól­an­um,“ seg­ir bæj­ar­stjór­inn.

Ný leik­skóla­bygg­ing á að kall­ast Undra­brekka og verður um 1.700 fer­metr­ar að stærð. Jafn­framt á að nýta þær bygg­ing­ar sem fyr­ir eru á svæðinu og tengja þær sam­an.

Heimild: Mbl.is