Home Fréttir Í fréttum Steypu­mót féll á starfs­mann bygg­inga­fyr­ir­tæk­is

Steypu­mót féll á starfs­mann bygg­inga­fyr­ir­tæk­is

37
0
Mynd úr safni. Myndin tengist fréttinni ekki beint. RÚV / Birgir Þór Harðarson

Lögregla var kölluð til vegna vinnuslyss í Mosfellsbæ seinni partinn í gær þar sem steypumót hafði fallið á starfsmann byggingarfyrirtækis.

Maðurinn var með meðvitund þegar lögregla kom á vettvang og var fluttur á sjúkrahús. Nánari upplýsingar um líðan hans liggja ekki fyrir.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar tildrög slyssins.

Heimild: Ruv.is