Framkvæmdasýsla ríkisins (FSR), fyrir hönd verkkaupa sem er Nýr Landspítali ohf. (NLSH) óskar eftir tilboðum í verkið „Nýr Landspítali við Hringbraut – Götur, veitur, lóð – Norðurhluti lóðar“ Verkið er á norðurhluta hluta lóðar Landspítala við Hringbraut milli Kvennadeildar, K-byggingar og Barónsstígs.
Verkið felst meðal annars í:
• Upprifi á núverandi yfirborði gatna, göngustíga, bílastæða og grænna svæða, ásamt allri jarðvinnu fyrir sjúkrahótelið.
• Allri vinnu við lagnir á svæðinu.
• Uppsteypu tengiganga og stoðveggja.
• Nýbyggingu gatna, bílastæða og gönguleiða, ásamt öllum lóðafrágangi.
Helstu magntölur eru:
Upprif á malbiki 3.300 m3
Gröftur 11.800 m3
Bergskeringar 4.300 m3
Fyllingar 5.300 m3
Mótasmíði 1.600 m2
Bendistál 50.000 kg
Steinsteypa 350 m3
Fráveitulagnir 760 m3
Snjóbræðslulagnir 9.600 m
Hellulagnir 2.500 m2
Malbikun 4.000 m2
Verkinu skal vera að fullu lokið í 1. júní 2017.
Útboðsgögn verða til sölu á kr. 3500 hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7C, 105 Reykjavík frá og með þriðjudeginum 12. maí 2015.
Tilboðin verða opnuð hjá Ríkiskaupum, 2. júní 2015 kl 11:00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.