Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 30.11.2026 Árborg býður út endurnýjun ráðhústrappa á Selfossi

30.11.2026 Árborg býður út endurnýjun ráðhústrappa á Selfossi

74
0
Árborg býður út endurnýjun ráðhústrappa á Selfossi
Mynd: Árborg

Árborg býður út endurnýjun ráðhústrappa á Selfossi

Sveitarfélagið Árborg hefur auglýst að nýju framkvæmdir við endurnýjun ráðhústrappanna að Austurvegi 2 á Selfossi. Í fyrra útboði barst aðeins eitt tilboð, að fjárhæð tæplega 110 milljónir króna, en því var hafnað þar sem það var verulega yfir kostnaðaráætlun. Nú er óskað eftir nýjum tilboðum í verkið og rennur tilboðsfrestur út 30. nóvember næstkomandi.

Framkvæmdin felur meðal annars í sér niðurrif eldri steyptra mannvirkja, uppsteypu nýrra trappa og stétta ásamt lagningu snjóbræðslu og raflagna fyrir LED-lýsingu. Tilboðsfrestur er til 30. nóvember næstkomandi.

Útboðið ber númerið 2604308 og voru útboðsgögn gerð aðgengileg 12. nóvember 2026.

Útboðsgögn verða afhent á útboðkerfinu Ajour.

Verkið er á vegum mannvirkja- og umhverfissviðs Árborgar og nær til endurgerðar trappa og aðliggjandi stétta við ráðhús sveitarfélagsins.

Eldri tröppur og steyptir staurar fjarlægðir

Samkvæmt útboðslýsingunni skal rífa, fjarlægja og farga eldri steyptum tröppum og stéttum við ráðhúsið.

Jafnframt á að fjarlægja þrjá steypta staura sem standa við núverandi ráðhúströppur.

Í stað eldri mannvirkja verða steyptar nýjar tröppur og stéttir samkvæmt fyrirliggjandi hönnunargögnum.

Framkvæmdin felur einnig í sér jarðvinnu, mótauppslátt, járnabindingu og steypuvinnu.

Um 108 rúmmetrar af steypu

Helstu áætlaðar magntölur gera ráð fyrir 108 rúmmetrum af steinsteypu, 406 fermetrum af steypumótum og tæplega 6,5 tonnum af bendistáli.

Jarðvinna felur í sér um 108 rúmmetra af greftri og jafnmikið magn af fyllingarefni.

Þá verður lögð snjóbræðsla í nýju mannvirkin og raflagnir fyrir fyrirhugaða LED-lýsingu.

Samkvæmt útboðslýsingunni verður lagt um 2.400 metra af snjóbræðslurörum og 760 metra af raflögnum í 32 millimetra PEH-rörum.

Verklok í október 2027

Tilboðum skal skila rafrænt í útboðskerfinu Ajour eigi síðar en mánudaginn 30. nóvember 2026 klukkan 11:00.

Tilboð verða opnuð rafrænt sama dag klukkan 11:10 og fá bjóðendur sent opnunaryfirlit í kjölfarið.

Samkvæmt útboðsgögnum skal verkinu að fullu lokið 1. október 2027.

Heimild: Árborg

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Eina til­boðinu í ráðhúströppurnar hafnað og verkið boðið út að nýju

Efni: Árborg býður út endurnýjun ráðhústrappa á Selfossi