Hagnaður verkfræðistofunnar Verkís dróst saman milli ára.
Verkfræðistofan Verkís hagnaðist um 303 milljónir króna í fyrra, samanborið við 404 milljónir árið 2024. Tekjur samstæðunnar, sem telur einnig Raförninn, Foss ráðgjöf, OPV Consulting AS og Verkis Grønland Aps, námu 9.657 milljónum króna, sem er smávægileg aukning milli ára.

Eignir voru bókfærðar á 2.888 milljónir í árslok og eigið fé nam 1.294 milljónum. Ársverk voru 363 á árinu. Félagið er í eigu starfsfólks sem félagið velur en hluthafar eru alls 93 talsins. Stjórn leggur til að 290 milljónir verði greiddar í arð.
Heimild: Vb.is












