Home Fréttir Í fréttum Þjónustuhús fyrir vindmyllur byggt á Hellu

Þjónustuhús fyrir vindmyllur byggt á Hellu

193
0
Þjónustuhúsið rís á lóð Landsvirkjunar við Faxaflatir 2 á Hellu. Ljósmynd: Aðsend mynd

Fyrsta skóflustunga að þjónustuhúsi Landsvirkjunar á Hellu í Rangárþingi ytra verður tekin i dag, miðvikudaginn 6. maí, kl. 13. Í húsinu mun starfsfólk Enercon, framleiðanda vindmyllanna, hafa aðstöðu.

Í tilkynningu segir að Landsvirkjun verði sömuleiðis með starfsstöð í húsinu en þar verður jafnframt verkstæði og geymsla fyrir varahluti í vindmyllurnar.

„Enercon hefur þegar ráðið íslenskt starfsfólk sem hefur fengið umfangsmikla starfsþjálfun víða um Evrópu til að geta sinnt viðhaldi vindmyllnanna 28 sem verða í Vaðölduveri. Það kemur heim með nýja þekkingu sem má búast við að verði mikil eftirspurn eftir á næstu árum.“

Samkvæmt samningi Landsvirkjunar við Enercon sér síðarnefnda fyrirtækið um viðhald á vindmyllunum fyrstu 15 árin sem vindorkuverið verður í rekstri.

Þjónustuhúsið rís á lóð Landsvirkjunar við Faxaflatir 2 á Hellu. Verktakafyrirtækið Alefli bauð lægst í verkið en heildarkostnaður er áætlaður um hálfur milljarður króna. Gert er ráð fyrir að húsið verði risið haustið 2027, þegar Vaðölduver verður komið í fullan rekstur.

Ásbjörg Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs hjá LV, mundar skóflu fyrir hönd Landsvirkjunar, Eggert Valur Guðmundsson, oddviti Rangárþings ytra, fyrir sveitarfélagið og Magnús Þór Magnússon, framkvæmdastjóri Aleflis, fyrir hönd verktaka.

Heimild: Vb.is