Home Fréttir Í fréttum Vilja reisa nýtt hótel og leita að fjárfestum

Vilja reisa nýtt hótel og leita að fjárfestum

55
0
nýtt hótel
Yfirlitsmynd af jörðinni Hjarðarból. Ljósmynd/Aðsend

Nýtt hótel

Eigendur jarðarinnar Hjarðarbóls vilja reisa nýtt hótel á jörðinni og leita að meðfjárfestum og samstarfsaðilum fyrir uppbyggingu ferðaþjónustu á svæðinu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá eigendum jarðarinnar.

Þar segir að eftirspurn eftir vistvænni gistingu hafi aukist á undanförnum árum og telja þau tækifæri felast í uppbyggingu í Ölfusi.

Gert er ráð fyrir nýju hóteli á svæðinu auk frekari uppbyggingar tengdrar ferðaþjónustu. Í tilkynningunni segir að horft sé til lausna tengdra vindorku, nýtingu heits vatns og uppbyggingu hleðslustöðva.

nýtt hótel
Hér má sjá teikningu af hótelinu sem vonir standa til að rísi. Ljósmynd/Aðsend

Vilja áfram þróa Hjarðarból

Að sögn eigendanna verður lögð rík áhersla á sjálfbærni í uppbyggingu á svæðinu.

„Við viljum halda áfram að þróa Hjarðarból með ábyrgum hætti og sjáum mikil tækifæri í sjálfbærri ferðaþjónustu á svæðinu. Hugmyndirnar hafa þegar verið teiknaðar upp og nú leitum við að aðilum sem hafa áhuga á að koma að verkefninu með okkur,“ er haft eftir Sigríði Helgu Sveinsdóttur, annars eigenda Hjarðarbóls.

Heimild: Mbl.is