Home Fréttir Í fréttum Vígðu nýtt hjúkrunarheimili á Höfn

Vígðu nýtt hjúkrunarheimili á Höfn

48
0
Vígðu nýtt hjúkrunarheimili á Höfn
Frá vígslu hjúkrunarheimilisins í dag. Ljósmynd/Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Vígðu nýtt hjúkrunarheimili á Höfn

Nýtt hjúkrunarheimili var vígt við Skjólgarð á Höfn í Hornafirði í dag. Með nýju byggingunni verður mikil bæting á aðstöðu íbúa og er það framfaraskref í uppbyggingu hjúkrunarþjónustu á svæðinu.

Fram kemur í tilkynningu frá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu og heilbrigðisráðuneytinu að viðstödd vígsluna hafi meðal annars verið Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra, Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra og Alma Möller heilbrigðisráðherra.

Húsnæðið er sagt standast allar þær kröfur sem gerðar eru til hjúkrunarheimila. Íbúar munu hafa sitt einkarými og allur aðbúnaður er í besta lagi.

Fram undan eru síðan endurbætur á eldra húsnæði hjúkrunarheimilisins.

Heimild: Mbl.is

Efni: Vígðu nýtt hjúkrunarheimili á Höfn