
Viðbragðsæfing í Sultartangastöð þar sem unnið er að endurbótum
Á dögunum fór fram viðbragðs- og rýmingaræfing í aðrennslisgöngum Sultartangastöðvar, þar sem unnið er að umfangsmiklum endurbótum á vegum Landsvirkjunar. Æfingin var hluti af öryggisráðstöfunum vegna framkvæmdanna og miðaði að því að prófa viðbragðsferla, samhæfingu aðila og rýmingu úr göngunum við krefjandi aðstæður.

Líkt eftir slysi innst í göngunum
Æfingin var sett upp þannig að líkt var eftir slysi innst í göngunum, á því svæði þar sem verktakinn LNS vinnur að framkvæmdum. Framkvæmt var útkall sem fór í gegnum viðbragðsaðila 112, stjórnstöðvar Landsvirkjunar og Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSU). Í kjölfarið fóru viðbragðskerfi á verkstað í gang og starfsmenn brugðust við samkvæmt þeim ferlum sem skilgreindir eru í öryggis- og viðbragðsáætlunum verkefnisins.

Viðbragðsaðili HSU kom á staðinn og fékk fylgd inn í göngin að hinum sviðsetta slysstað. Þar var æft hvernig staðið skuli að fyrstu viðbrögðum, samskiptum, aðgengi viðbragðsaðila og rýmingu við aðstæður sem líktust raunverulegu slysi í neðanjarðarmannvirki.

Samhæfing Landsvirkjunar, LNS og HSU
Æfingin var samhæfð milli Landsvirkjunar, LNS og HSU. Arnar Páll Gíslason, verkefnastjóri umbóta og öryggis hjá Landsvirkjun, stýrði æfingunni. Einnig komu að henni Erlingur Jónsson og Lárus Þorsteinsson frá LNS, Atli Ingimarsson frá Völubergi verkfræðistofu og Sturla frá HSU sem viðbragðsaðili.

Samstarf þessara aðila skiptir miklu máli á framkvæmdasvæði þar sem unnið er í löngum aðrennslisgöngum og aðstæður geta verið flóknar. Með æfingunni var meðal annars reynt á boðleiðir, hlutverkaskiptingu, aðgengi að vettvangi og samskipti milli þeirra sem koma að viðbragði.

Lærdómur nýttur til að styrkja öryggisferla
Að æfingu lokinni var farið yfir framkvæmdina, hvað hefði gengið vel og hvar mætti skerpa enn frekar á verklagi. Niðurstöður verða teknar saman í skýrslu og nýttar til að styrkja öryggisferla enn frekar á verkstaðnum.

Mikil áhersla hefur verið lögð á vandaðan undirbúning framkvæmdanna við Sultartangastöð, meðal annars með áhættugreiningum, vöktun og viðbragðsáætlunum. Slíkar æfingar eru mikilvægur hluti af því að tryggja öryggi starfsfólks, verktaka og viðbragðsaðila á framkvæmdatíma.
Heimild: Landsvirkjun.is











