
Verktakar hafa reist sér hurðarás um öxl
Verktakar hafa reist sér hurðarás um öxl. Það stefnir í framkvæmdastopp í íbúðauppbyggingu að mati fasteignasala. 1700 nýjar íbúðir seljast ekki og verktakar sitja uppi með himinháan vaxtakostnað.
Vaxtakostnaður verktaka vegna nýbyggðra íbúða sem seljast ekki á höfuðborgarsvæðinu nemur um 60 milljónum á dag eða um 20 milljörðum á ári að mati fasteignasala. Um 1.700 nýjar íbúðir eru óseldar á höfuðborgarsvæðinu.
Ef þessi þróun heldur áfram gæti hún leitt til þess að uppbygging stöðvist, sem aftur gæti skapað enn meiri húsnæðisskort og verðhækkanir á næstu árum.
Aldrei fleiri íbúðir til sölu
Salan það sem af er þessu ári er um 10% minni en í fyrra. Illa gengur að selja nýjar íbúðir. Framboð íbúða til sölu jókst talsvert á fyrsta ársfjórðungi ársins 2026. Alls voru 3.048 nýjar íbúðir auglýstar til sölu á ársfjórðungnum og hafa þær aldrei verið fleiri á því tímabili. Til samanburðar var 2.161 ný íbúð auglýst til sölu á fyrsta ársfjórðungi 2025 og hefur þeim fjölgað um rúmlega 40% á milli ára.
55-60 milljónir á dag í vaxtakostnað – 20 milljarðar á ári
Páll segir að auk þess séu lánþegaskilyrðin íþyngjandi og hægi mikið á markaðinum. Vaxtakostnaður verktaka sé himinhár og sligandi. Verktakar séu nú að draga saman seglin.
„Flestir þeirra eru að skulda og vaxtakostnaðurinn er einhvers staðar á bilinu 55-60 milljónir á dag á nýbyggingamarkaði og það er íþyngjandi fyrir þá flesta. Og þar af leiðandi er þessi vaxtakostnaður mjög hár á meðan það eru ekki að koma inn tekjur meðan salan er ekki nógu hröð,“ segir Páll Heiðar.
Af hverjum 1000 íbúðum sem seljast eru einungis 150 í nýbyggingum. Verktakar hafa sumir hverjir reist sér hurðarás um öxl með mikilli uppbyggingu en eftirspurnin er of lítil.
Páll Heiðar segir að margir verktakar séu nú þegar hreinlega komnir í framkvæmdastopp.
„Ef ekki það þá hafa þeir hægt á áframhaldandi uppbyggingu. Verktakar sem eru með fyrirhuguð verkefni, þeir eru ekki að halda áfram með þau verkefni. Þannig að það er bara staðan hjá þeim. Og aðgengi að fjármagni fyrir þessa aðila er líka takmarkað á meðan að þeir eru með lager sem þarf að selja.“
Hann bendir á að framkvæmdastopp sem varð á árunum 2018 og 2019 megi ekki endurtaka sig.
„Í kjölfarið þá náttúrulega fór markaðurinn af stað með lækkandi vöxtum og þá var skortur og markaðurinn hækkaði hérna um 35% frá 2021-2022 sem olli því að það varð mikil verðbólga og vaxtahækkun og ef að við gerum ekki eitthvað í þessu núna, og ég hvet sveitarfélögin til þess að finna lausnir núna til framtíðar til þess að fyrirbyggja að þetta komi ekki upp aftur,“ segir Páll Heiðar.
Heimild: Ruv.is
Efni: Verktakar hafa reist sér hurðarás um öxl











