
Garðabær hefur skrifað undir verksamning við Aðalvík ehf. vegna innanhússfrágangs í Ungmennahrauni, nýju úrræði fyrir ungmenni með miklar stuðningsþarfir.
Aðalvík sér um framkvæmdirnar
Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar og Hrafn Þór Jörgensson fyrir hönd Aðalvíkur ehf. skrifuðu undir verksamning um framkvæmdina.

Nordic Office of Architecture hannar rýmið
Framkvæmdir við Ungmennahraun hefjast á næstunni. Nordic Office of Architecture hannar rýmið en Aðalvík ehf. sér um framkvæmdir og innanhússfrágang. Strendingur annast eftirlit með framkvæmdinni.
Áhersla hefur verið lögð á að hanna fallegt og aðgengilegt umhverfi Ungmennahrauns. „Garðabær hefur lagt mikla vinnu í að hanna rýmið með þarfir ungmennanna að leiðarljósi“

Ungmennahraun fyrir ungmenni með stuðningsþarfir
Í Ungmennahrauni í Garðabæ verður lögð áhersla á að veita þjónustu sem tekur mið af þörfum og getu hvers og eins. Markmiðið er að veita ungmennum með miklar stuðningsþarfir öruggt og skapandi umhverfi til að efla félagsfærni og sjálfstæði í aðlaðandi umhverfi.
Heimild: Garðabær











